Um hundrað Íslendingar, þar af um níutíu piltar, urðu að strandaglópum í Barselóna í gærkvöldi þar sem flugi þeirra á vegum Play var snúið við vegna bilunar. Þeir sváfu á flugvallargólfinu í nótt en óljóst er hvenær hópurinn kemst heim.
Hálfur hópurinn hefur gripið til þeirra örþrifaráða að fljúga til Póllands og síðan þaðan heim. Restin vonast til að komast heim í kvöld, að því gefnu að það takist að gera við flugvélina en tösku með vegabréfum var rænt af þeim í nótt. Play segir að varahlutur sé á leiðinni til að gera við vélina.
Nokkrir knattspyrnflokkar ÍA og Grindavíkur voru á leiðinni heim úr æfingaferð í Salou í gær en Skagamenn unnu Costa Daurada-mótið í Salou á norðaustanverðum Spáni.
En sú sigurvíma entist ekki lengi. Þegar drengirnir voru teknir á loft í gærkvöldi tilkynnti flugmaður um bilun í vélinni, sneri henni við og lenti síðan í Barselóna.
„Við erum eiginlega bara strandaglópar hér,“ segir Lára Björk Gísladóttir, einn af fararstjórum Skagamanna í ferðinni, í samtali við mbl.is. Hópnum hafi verið lofuð gisting en ekkert hafi orðið úr því. Ferðalangarnir hafi hver fengið tólf evrur úthlutaðar fyrir mat en að öðru leyti þurftu þeir að redda sér sjálfir.
Lára segir að 75 manns séu í ferðinni á vegum ÍA, þar af séu á sjötta tug drengja, og um 25 drengir séu þar á vegum Grindavíkur.
Og það er hægara sagt en gert að finna hótelgistingu fyrir hundrað manns, hvað þá um miðja páskahátíð. Hópurinn svaf því á gólfinu á flugstöðinni.
„Þannig að við komum okkur fyrir á flugstöðinni,“ segir Lára, „þar sem allir liggja bara út um allt.“
Reyndar hafi hópurinn fengið nýjan áætlaðan flugtíma, kl. 10.55 í dag. „En svo var því bara „cancellað“,“ bætir Lára við.
Drengirnir lágu þá á hörðu marmaragólfinu alla nóttina og þeir sem ekki höfðu kodda hvíldu höfuðið á peysum sínum eða töskum.
„Við lentum í því að vera rænd hérna,“ segir Lára. „Það komu bara einhverjir þjófar hérna inn og rændu tösku með vegabréfum.“
Ræðismaður Íslendinga í Barselóna mætti aftur á móti á flugstöðina til að aðstoða.
Nú hefur dreifst úr hópnum, þar sem helmingur þeirra er á leiðinni til Póllands og þaðan heim til Íslands.
Birgir Olgeirsson, sérfræðingur í almannatengslum hjá Play, segir að varahlutur sé á leiðinni til að gera við vélina.
Freydís Bjarnadóttir, annar fararstjóri á vegum ÍA, segir við mbl.is að hópnum hafi borist upplýsingar um að Play-vélin fari aftur í kvöld.
Þá hafi hópurinn fundið sér hótel til að dvelja á þangað til enda varð það verkefni auðveldara um leið og hópurinn var orðinn nánast helmingi minni.
Þannig að þið komist að öllum líkindum heim fyrir páskadag?
„Úff,“ svarar Freydís. „Við erum bara í væntingastjórnun. Miðvikudagurinn í síðasta lagi. Allt fyrir það er bara plús.“
Birgir hjá Play segir að farþegar fái næst upplýsingar um klukkan 13.
„Við erum að reyna eins og við getum að koma frá okkur upplýsingum til farþega,“ segir hann en eitthvað hefur borið á kvörtunum um samskiptaleysi við flugfélagið. Birgir bendir á að þegar ferðir eru bókaðar í gegnum ferðaskrifstofu berist allar tilkynningar í gegnum ferðaskrifstofuna.