Íslendingar sem hafa verið strandaglópar í Barselóna á Spáni síðan í gærkvöldi munu að óbreyttu komast heim í kvöld þar sem Play hefur tekið flugvél á leigu til að koma hópnum heim.
Um hundrað Íslendingar, þar af um 90 piltar, urðu strandaglópar þegar flugi þeirra á vegum Play var snúið við vegna bilunar, eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag.
Um er að ræða tvo knattspyrnuhópa, annan frá Grindavík og hinn frá Akranesi, sem voru á Spáni til að spila á Costa Daurada-mótinu.
Stefnt er að því að gera við vélina sem bilaði en Birgir Olgeirsson, sérfræðingur í almannatengslum hjá Play, segir í samtali við mbl.is að flugfélagið hafi auk þess leigt aðra vél til að koma hópnum heim.
Sú vél fari að óbreyttu í loftið kl. 20.15 að spænskum tíma, 18.15 að íslenskum tíma.
Ferðalangarnir sváfu á flugvallargólfinu í nótt en í dag renna út skjöl sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana.
Hálfur hópurinn hefur gripið til þeirra örþrifaráða að fljúga til Póllands og síðan þaðan heim. Tösku með vegabréfum var rænt af þeim í nótt.