Tvennt handtekið vegna líkamsárásar á Ísafirði

Gerendur og þolendur virðast ekki hafa þekkst fyrir, að sögn …
Gerendur og þolendur virðast ekki hafa þekkst fyrir, að sögn lögreglu. mbl.is

Maður og kona um þrítugt eru í haldi Lögreglunnar á Vestfjörðum eftir að hafa ráðist á þrjá aðra í miðbæ Ísafjarðar í nótt.

Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir við mbl.is að árásin hafi átt sér stað um kl. 2 í nótt og líklegast hafi fólk verið ölvað.

Hann segir áverkana á hinum særðu ekki vera alvarlega. „Þetta var bara með þeim hætti að lögreglunni fannst að það ætti að taka þetta föstum tökum.“ 

Gerendur og þolendur virðast ekki hafa þekkst fyrir, að sögn Hlyns, sem segir enn fremur að árásin hafi ekki tengst hátíðinni Aldrei fór ég suður sem stendur yfir í bænum um helgina.

Í raun hafi lítið vesen verið á hátíðargestum. Enginn hafi verið grunaður um ölvunarakstur við sérstakt umferðareftirlit í gærkvöldi og hátíðarhöld hafi verið til fyrirmyndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert