Aðstoðuðu fólk sem festist í lyftu

Dælubílar fóru í þrjú verkefni.
Dælubílar fóru í þrjú verkefni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Meðal verkefna slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu síðasta sólahringinn var að aðstoða fólk sem var fast í lyftu sem hafði bilað, að því er slökkvilið greinir frá.

Annars var nokkuð rólegt þegar kemur að útköllum. Dælubílar fóru í þrjú verkefni.

Alls voru 66 verkefni á sjúkrabílum, þar af 17 keyrð á forgangi.

Var laugardagurinn nýttur til æfinga á bátum og körfubílum, ásamt því að þrífa tæki og búnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert