Spákortið fyrir fimmtudag, sumardaginn fyrsta, sýnir rauðar tölur og sól í flestum landshlutum. Í spánni segir að búast megi við allt að 13 stiga hita að deginum til og að hlýjast verði vestan til á landinu.
Hæð er við norðausturströnd Grænlands og lægðasvæði eru suður í hafi sem beina til okkar í austlægri átt. Víða á landinu hefur því verið gola eða kaldi, en stinningskaldi allra syðst.
Á morgun og þriðjudag er útlit fyrir keimlíkt veður í flestum landshlutum, en á Vestfjörðum þykknar upp um tíma með dálitlum éljum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Búast má til suðaustan 8-15 m/sek suðvestan til á miðvikudaginn, en annars hægari vindur. Skýjað verður með köflum og yfirleitt þurrt, en bjartviðri fyrir norðan. Heldur hlýnar í veðri.
Á fimmtudag, sumardaginn fyrsta, gera spár ráð fyrir suðaustan 8-15 m/sek, en hægari vindi norðan- og austanlands. Víða lítils háttar væta, en léttskýjað norðaustan til. Hiti 4 til 13 stig að deginum, hlýjast vestan til.