Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið á ný til meðferðar umsókn um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti.
Helsta breytingin er sú að leyfðar verði íbúðir á efri hæðum húsanna.
Bakhlið þeirra snýr að Austurvelli og skjólmegin við þau er vinsælasta útiveitingasvæði höfuðborgarinnar á sólardögum á sumrin.
Þarna eru starfrækt veitingahúsin American Bar, Enski barinn, Gilligogg kokteilbar og Duck&Rose.
Eigandi húsanna er Reitir fasteignafélag. Fyrir hönd félagsins sendu THG-arkitektar fyrirspurnina til Reykjavíkurborgar. Henni var vísað til meðferðar verkefnastjóra skipulagsfulltrúa.
Breytt notkun samkvæmt deiliskipulagi verður sú að leyfa íbúðir á efri hæðum þar sem áður voru skrifstofur. Þá verði leyfilegt að hafa skrifstofur/veitingarými á efri hæðum eftir atvikum.
Sömuleiðis verði leyft að breyta útliti húsanna og setja svalir á þau svo að húsnæðið uppfylli skilyrði fyrir íbúðir.
Aðrar og smærri breytingar verði á núverandi kvistum og bætt við kvistum á húsum nr. 12 og 12a.
Loks að leyft verði að setja léttbyggð skyggni yfir útisvæði veitingastaða við Austurvöll, enda er áfram gert ráð fyrir veitingastarfsemi á 1. hæðum og kjallara bygginganna.
Áfram verður veitingastaður á þakhæð Austurstrætis 12, Vinnustofa Kjarvals.
Notkun húsanna nr. 8-10, 12, 12a og 14 verði breytt þannig að leyfðar verði allt að 36 íbúðir af fjölbreyttum stærðum á hæðum 2-5 að uppfylltum skilyrðum um hljóðvist, enda megi reikna með einhverju ónæði af veitingarekstri sem er heimill fram á nótt.
Hús númer 10a er ekki hluti af þessum breytingum enda í eigu annarra. ÁTVR rekur vínbúð á 1. hæð hússins.
Tilgátumyndir að breyttu útliti fylgja með greinargerðinni en tekið er fram að það séu aðeins hugmyndir, ekki endanlegt útlit.
Í greinargerð THG-arkitekta segir að svæðið sem deiliskipulagstillagan nái til snerti tvö mikilvæg almenningsrými í miðborginni, Austurvöll og Austurstræti, sem hvort um sig gegni ákveðnu hlutverki.
„Allar breytingar og endurbætur skulu gerðar með virðingu fyrir uppruna og stíl viðkomandi byggingar og götumyndar,“ segir í greinargerðinni.
Um sé að ræða verndaða götumynd þar sem húsin eru ýmist friðuð eða umsagnarskyld. Þau eru byggð á árabilinu 1921 til 2000. Samráð skal hafa við Minjastofnun Íslands um allar breytingar sem kunna að verða gerðar.
Sumarið 2023 sendu Reitir fyrst til Reykjavíkurborgar fyrirspurn um hvort breyta megi efri hæðum húsa á lóð 12-14 við Austurstræti í íbúðir samkvæmt uppdráttum THG-arkitekta.
Þær væru ætlaðar til langtímaleigu enda skammtímaleiga óheimil á svæðinu. Þá var gert ráð fyrir að fjöldi íbúða yrði 26.
Alþingi leigði hæðir í húsunum undir skrifstofur alþingismanna. Þeir hafa flutt í hið nýja skrifstofuhús Alþingis, Smiðju við Vonarstræti.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur tók jákvætt í fyrirspurnina 2023 en með skilyrðum. Benti hann sérstaklega á mikilvægi hljóðvistar.
Nú, tveimur árum síðar, er erindið að nýju komið á borð skipulagsfulltrúa. Sú breyting hefur m.a. orðið að ekki er lengur tiltekið sérstaklega að íbúðirnar séu ætlaðar til langtímaleigu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.