Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við almennt eftirlit veitti grunsamlegum einstaklingi athygli. Þegar lögreglumenn ætluðu að gefa sig á tal við hann hljóp hann á brott og henti frá sér mittistösku.
Hófst þá eftirför lögreglu sem varði ekki lengi en einstaklingurinn gafst fljótt upp.
Reyndist hann vera með nokkuð magn fíkniefna og er grunur um að því hafi verið ætlað til sölu og dreifingar.
„Við frekari athugun reyndist aðilinn í ólöglegri dvöl á landinu. Hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins,“ segir í dagbók lögreglu í morgun.
Nánast eins atviki var lýst í dagbók lögreglu á föstudagsmorgun. Þá flúði einstaklingur einnig lögreglu við almennt eftirlit og reyndist hann einnig með fíkniefni innanklæða og dvaldi ólöglega á landinu.