Einn er í haldi lögreglu eftir að lögreglan brást við útkalli í heimahúsi í uppsveitum Árnessýslu vegna konu með höfuðáverka. Ekki er ljóst hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað en ekki var hægt að ræða við konuna vegna skertrar meðvitundar.
Þetta staðfestir Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Eins og mbl.is greindi fyrst frá var lögreglan á Selfossi kölluð út á ellefta tímanum vegna slasaðrar konu í heimahúsi.
Ekki liggur fyrir hvort eitthvað saknæmt hafi valdið því að konan slasaðist en verið er að rannsaka málið.
Þegar lögregluna bar að garði var konan liggjandi með höfuðáverka og blæddi. Garðar segir að ekki hafi verið hægt að ræða við hana á vettvangi. Konan var í heimahúsi ásamt öðrum manni.
„Hann var handtekinn á staðnum því við þurfum að varpa ljósi á málið, hvað gerðist þarna,“ segir Garðar en tekur skýrt fram að það sé ekki ljóst að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað.
„Þau voru tvö á staðnum, hún er með skerta meðvitund. Við vitum ekki hvað gerist þarna þannig að þetta er í raun rannsakað sem slys, en við þurfum alltaf að hafa augun opin fyrir öllu öðru,“ segir Garðar.
Konan var flutt með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.