Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með umferðareftirlit og veitti bifreið athygli sem ók talsvert yfir hámarkshraða á Hafnarfjarðarvegi.
Lögreglumenn gáfu ökumanninum stöðvunarmerki en hann jók þá ferðina og reyndi að stinga lögregluna af.
„Upp hófst eftirför á eftir bifreiðinni en með athæfi sínu skapaði ökumaðurinn mikla hættu fyrir aðra ökumenn og gangandi vegfarendur,“ segir um málið í dagbók lögreglu í morgun.
Ökumaðurinn stöðvaði að lokum bifreiðina og var handtekinn. Kom þá í ljós að hann var undir aldri.
Var hann þá fluttur á lögreglustöð og var kallað á foreldra og barnaverndaryfirvöld.