Frans páfi var „einstakur og opinn fyrir öllum“

Sérstök minningarmessa verður haldinn í Landakotskirkju á morgun þar sem …
Sérstök minningarmessa verður haldinn í Landakotskirkju á morgun þar sem Frans páfa verður minnst. mbl.is/Kristinn Magnússon

David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, segir andlát Frans páfa vera líkt og þegar fjölskyldufaðir fellur frá. Hann lýsir páfanum sem einföldum manni sem var opinn fyrir öllu fólki.

Vatíkanið tilkynnti í morgun að páfinn væri látinn, 88 ára að aldri. Hann gegndi embættinu í tólf ár.

Hittu páfann í byrjun febrúar

Í samtali við mbl.is segir David fráfall páfans vera sorglegt. Ekki sé langt síðan starfsfólk kaþólsku kirkjunnar á Íslandi hitti páfann í Róm.

„Þetta er svo sterk upplifun, sérstaklega fyrir okkur, af því að við vorum í Róm í byrjun febrúar, í pílagrímsferð, og þar tók páfinn á móti okkur. Við vorum með þeim síðustu sem hann tók á móti,“ segir David.

Hann vísar þar til langrar spítalavistar sem hófst eftir að páfinn greindist með lungnabólgu í báðum lungum um miðbik febrúar.

Frans Páfi tók á móti starfsmönnum kirkjunnar er þau heimsóttu …
Frans Páfi tók á móti starfsmönnum kirkjunnar er þau heimsóttu Róm í byrjun febrúar. Ljósmynd/Kaþólska kirkjan á Íslandi

Einstakur og elskaði fátæka

David lýsir páfanum sem kátum og hlýjum er hann tók á móti hópnum í febrúar, og segir þær minningar nú koma aftur upp þegar páfans er minnst innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.

Aðspurður segir hann alla páfa hafa mikil áhrif þegar þeir taka við embætti, en að það hafi verið einfaldleiki sem einkenndi Frans páfa.

„Hann elskaði að vera einstakur og elskaði fátæka. Það gerist ekki oft að maður í svona hárri stöðu sé svona einfaldur og opinn fyrir öllum,“ segir David.

„Mér finnst eins og allir sem hittu hann minnist hans á þann hátt,“ bætir hann við.

Minningarmessa haldin á morgun

Messa var haldin í morgun í Landakotskirkju þar sem Frans páfa var minnst eftir að fregnir bárust af andláti hans.

David segir að sérstök minningarmessa verði haldin á morgun klukkan 18 í Dómkirkjunni, þar sem beðið verður fyrir sálu páfans.

Aðspurður um næstu skref og val nýs páfa segir biskupinn að það eigi ekki að vera í huga fólks að sinni.

„Það sem við eigum að gera núna er að jarðsyngja páfann og biðja fyrir honum – svo kemur að því hvernig við munum halda áfram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert