Halla minnist nú Frans páfa

Halla Tómasdóttir minnist Frans páfa.
Halla Tómasdóttir minnist Frans páfa. Samsett mynd

Búið er að lagfæra orðalag í færslu Höllu Tómasdóttur forseta Íslands þar sem hún minntist Frans páfa.

At­hygli vakti að þrátt fyrir að færslan hafi verið á íslensku kall­aði Halla páfann „Pope Franc­is“ en not­aði ekki ís­lenskt heiti hans. Er nú búið að bæta úr því.

Frans páfi lést í morg­un 88 ára að aldri og hafa leiðtog­ar minnst hans um all­an heim í dag.

„Ég deili einlægum samúðarkveðjum vegna fráfalls Frans páfa. Heimurinn hefur misst mikilvægan leiðtoga sem hafði kærleika og umhyggju fyrir þeim sem minnst mega sín ávallt í fyrirrúmi og hvatti til ábyrgrar forystu. Megi þær áherslur lifa áfram í verkum okkar allra,“ skrifaði Halla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert