Prestar standa með Oscari

Íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um það í fyrra þegar lögregla sótti …
Íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um það í fyrra þegar lögregla sótti Oscar inn á salerni í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði til þess að vísa honum úr landi. Ljósmynd/Aðsend

Vígðir prestar í íslensku þjóðkirkjunni standa með fjölskyldunni sem nú fer fram á dvalarleyfi fyrir Oscar Anders Florez Bocanegra. Alls rita 30 prestar undir yfirlýsinguna. 

„Við sem þessa yfirlýsingu undirritum eigum ekki beina aðkomu að málinu en við teljum okkur skylt og ljúft að sýna málstað þessa barns samstöðu,“ segir í yfirlýsingu prestanna.

Vísa á Oscari úr landi á morgun en hann flúði til lands­ins með föður sín­um árið 2022 eft­ir að glæpa­menn í Kól­umb­íu hótuðu þeim líf­láti. Faðir Oscars beitti hann síðar of­beldi og af­salaði sér for­ræði.

Í októ­ber 2024 var Oscar send­ur úr landi með föður sín­um og endaði einn á göt­unni í Bogotá, þar sem hann var í mánuð áður en fóst­ur­fjöl­skyld­an sótti hann og kom hon­um aft­ur til Íslands.

Í tilkynningu prestanna segir:

„Íslenska Þjóðkirkjan er evangelísk-lúthersk kirkja og sem slíkri ber henni að miða erindi sitt við ritskýringu Biblíunnar. Við prestsvígslu lofar vígsluþegi að standa vörð um „æskulýðinn“, að „styðja lítilmagna og hjálpa bágstöddum“, auk þess að „rannsaka ritningarnar“ og lifa eftir þeim.

Í siðfræði Gamla testamentisins er lögð áhersla á umgengni við útlendinga og í sama kafla og Jesús nam orðin „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ (3M 19.18) er jafnframt að finna þá kröfu að: „Aðkomumaður, sem dvelur hjá ykkur, skal njóta sama réttar og innborinn maður. Þú skalt elska hann eins og sjálfan þig því að þið voruð aðkomumenn í Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“

Í kennslu Jesú eru börn í forgrunni, sem fyrirmyndir og sem skjólstæðingar okkar: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki.“ Þá er siðfræði Biblíunnar dregin saman í orðum Jakobsbréfs sem segir að: „Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði föður er að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingum þeirra.“

Kirkjan fagnar nú gleðidögum en þeir eru haldnir í ljósi upprisuhátíðar páskanna og að undangenginni föstu, þar sem samfélög og einstaklingar eru hvött til að iðka miskunnsemi og að rækta kærleika í garð allra.

Sú fjölskylda sem nú berst fyrir velferð Oscar Anders Florez Bocanegra og hefur veitt honum skjól í þrengingum sínum, birtir með beinum hætti þá dyggðasiðfræði sem Biblían kennir.

Við tökum undir þá kröfu að honum verði veitt dvalarleyfi hérlendis.“

Undir samstöðuyfirlýsinguna rita: 

Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, prestur í Akureyrar- og Lauglandsprestakalli.

Sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivallaprestakalli.

Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn, Mosfellsprestakall, Mosfellsbæ.

Sr. Árni Þór Þórsson, prestur innflytjenda og flóttafólks.

Dr. Bjarni Karlsson, prestur og siðfræðingur við sálgæslustofuna Haf.

Sr. Bolli Pétur Bollason, prestur í Tjarnaprestakalli.

Sr. Bryndís Böðvarsdóttir, prestur.

Sr. Daníel Ágúst Gautason, prestur í Lindakirkju.

Sr. Edda Hlíf Hlífarsdóttir, prestur í Húnavatnsprestakalli.

Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkursókn.

Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir, biskupsritari.

Sr. Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli.

Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra.

Sr. Hildur Björk Hörpudóttir, við Glerárkirkju á Akureyri.

Sr. Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur í Akureyrarkirkju.

Sr. Hjalti Jón Sverrisson, fangaprestur.

Sr. Jóhanna Gísladóttir, prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli.

Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Vídalínskirkju í Garðabæ.

Sr. Margrét Lilja Vilmundardóttir, prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.

Sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju í Garðabæ.

Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson, prestur í Dalvíkurprestakalli.

Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, prestur.

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.

Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur í Þorlákshafnarprestakalli.

Sr. Sigrún Margrétar Óskarsdóttir, prestur og faglegur handleiðari Landspítala.

Dr. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur í Vídalínskirkju í Garðabæ.

Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir, prestur í Þingeyjarprestakalli.

Sr. Stefanía Steinsdóttir, sóknarprestur í Ólafsfjarðarprestakalli.

Sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda og flóttafólks.

Sr. Úrsúla Árnadóttir, prestur.

Boðað hefur verið til mótmæla í fyrramálið kl. 9.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert