Að kvöldi sumardagsins fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl næstkomandi, verða í menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði haldnir tónleikar til minningar um Stefán R. Gíslason, organista og kórstjóra.
Í áratugi var Stefán driffjöður í margvíslegu tónlistarstarfi í Skagafirði eins og vel þekkt var á landsvísu. Nefna má að Stefán var lengi stjórnandi Karlakórsins Heimis, Kirkjukórs Glaumbæjarprestakalls, Álftagerðisbræðra og svo mætti eitthvað áfram telja. Þeir listamenn sem hér eru að framan nefndir hljóðrituðu og gáfu út geisladiska, þar sem Stefán sinnti útsetningum og hljóðritun. Með þeim hætti barst ómurinn af starfi hans víða um land.
„Hvar sem Stefán fór munaði mjög um framlag hans. Og nú ætlum við að syngja inn í sumarið í minningu hans,“ segir sr. Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum og áður prestur í Glaumbæ.
Sr. Gísli og Stefán störfuðu lengi saman á vettvangi kirkjunnar. Stefán, sem lést haustið 2023, hefði orðið sjötugur síðasta haust og þá var stofnaður um hann minningarsjóður, að frumkvæði sr. Gísla. Ágóði af væntanlegum tónleikum mun renna í sjóðinn, sem er ætlað að styrkja efnilegt fólk til náms í orgelleik og kórstjórn.
„Kirkjan og samfélagið úti á landi þurfa fólk menntað í tónlist, svo mikilvægur sem sá þáttur er mannlífinu. Við höldum minningu Stefáns vel á lofti með því að styðja við fólk sem starfa mun á sama vettvangi og hann gerði, bæði vel og lengi,“ segir sr. Gísli.
Á væntanlegum tónleikum á fyrsta sumardegi sem hefjast kl. 20 koma fram Karlakórinn Heimir og kirkjukórinn Glaumbæjarprestakalli. Einnig Álftagerðisbræður, það er þeir Pétur, Gísli og Óskar Péturssynir ásamt frændum þeirra Agnari, Jóel, Ísak og Atla Gunnari. Þá kemur fram harmonikutríó sem skipa þeir Jón Þorsteinn Reynisson, Ísak Agnarsson og Guðmundur Smári Guðmundsson.
Stjórnendur kóranna eru fyrrnefndur Jón Þorsteinn og Margrét Bóasdóttir. Píanóleikarar eru Alexander Edelstein og Valmar Väljaots.