Heildarmagn úrgangs sem Sorpa tók við á síðasta ári var minna en árið 2023. Alls tók Sorpa á móti 147 þúsund tonnum af úrgangi í fyrra en 156 þúsund tonnum árið 2023.
Árið 2022 skiluðu 173 þúsund tonn af úrgangi sér. Þetta kemur fram í ársskýrslu Sorpu. Þar segir að þessar tölur endurspegli ekki endilega að minna magn úrgangs myndist í samfélaginu heldur geti gefið vísbendingar um þróunina í endurnotkun og endurvinnslu.
Samhliða þessu hefur endurnýtingarhlutfall hækkað hjá Sorpu. Með því er átt við úrgang sem nýtist aftur með einhverjum hætti en fer ekki í förgun. Endurnýtingarhlutfallið var 79% í fyrra og tók mikið stökk frá fyrra ári þegar það var 65%.
Í ársskýrslu Sorpu er að finna tölur um flokkun úrgangs hjá einstaka sveitarfélögum. Athyglisvert er að mestur blandaður úrgangur fellur til á Seltjarnarnesi, 128,2 kíló á hvern íbúa.
Seltirningar eru líka áberandi lélegastir í að flokka matarleifar. Aðeins skila sér 8,6 kíló af matarleifum á hvern íbúa þaðan.
Garðbæingar skila 19,7 kílóum af matarleifum á haus en jafnframt 105,6 kílóum af blönduðum úrgangi.
Hafnfirðingar henda minnstu í blönduðu tunnuna, 97,3 kílóum á mann. Úr þeirri sveit skilaði sér 18,1 kíló af matarleifum á kjaft.