Úðavopni beitt: Fjórir handteknir

Fjórir voru handteknir vegna rannsóknar málsins.
Fjórir voru handteknir vegna rannsóknar málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra einstaklinga vegna slagsmála í heimahúsi, að því er segir í dagbók lögreglu í morgun.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmálanna og var tilkynnt um að úðavopni hefði verið beitt á einn einstakling.

Fjórir voru handteknir vegna rannsóknar málsins en lögreglumenn á lögreglustöð 3, sem sinnir meðal annars útköllum í Kópavogi og Breiðholti, sinntu útkallinu. 

Grunaður um mörg brot

Lögreglumenn sömu stöðvar voru við hefðbundið eftirlit og stöðvuðu ökumann bifreiðar. Var sá handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja.

Var hann einnig grunaður um vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Hann hafði sömuleiðis verið sviptur ökuréttindum. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert