Á austurbakka Ölfusár, ofan við Selfoss, hefur nú verið komið upp varnargarði á þeim stað þar sem ný brú yfir ána verður. Þetta er við Efri-Laugardælaeyju, þar sem reistur verður 60 metra hár turn en sá verður eins konar hryggjarstykki í brúnni nýju.
Jarðvegsrannsóknum á brúarstæðinu er nú lokið og stefnt er að því að framkvæmdir við undirstöður mannvirkisins hefjist innan tíðar. Á varnargarðinum, sem myndin hér að ofan sýnir vel, verður sett 40 metra löng brú út í eyjuna. Að því fengnu komast framkvæmdirnar á fullt skrið.
Unnið er um þessar myndir að jarðvegsskiptum austan árinnar, sunnan við bæinn Laugardæli. Þar verður tenging við brúna nýju en öll þessi mannvirki verða hluti af Hringvegi 1. Framkvæmdum á að ljúka árið 2028.