Erlendir aðilar sýna því nú áhuga að kaupa og flytja úr landi kísilmálmverksmiðjuna í Helguvík.Eiga þeir í viðræðum við fulltrúa Arion banka vegna þessa.
Jafnframt hafa aðilar sýnt því áhuga að nýta byggingar verksmiðjunnar í heild eða að hluta og þá undir annars konar starfsemi.
En ekki fylgdi sögunni hvers konar starfsemi umræddir aðilar hafa þá í huga.
Má því segja að staðan sé óbreytt frá því fyrir ári þegar Morgunblaðið sagði síðast frá viðræðum um verksmiðjubyggingarnar.
Arion banki eignaðist kísilverksmiðjuna árið 2018 í kjölfar gjaldþrots fyrri eiganda, United Silicon, og vann dótturfélag bankans, Stakksberg ehf., að endurbótaáætlun fyrir verksmiðjuna og leitaði að hæfum kaupendum sem gætu rekið hana.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í desember 2022 að Arion banki og PCC hefðu formlega slitið viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni. Við það tækifæri sagðist bæjarstjóri Reykjanesbæjar feginn því að niðurstaða væri loks komin í málið. Þá sagði í tilkynningu frá Arion banka við sama tilefni að samhliða hefði Arion sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins.
Bókfært virði verksmiðjunnar í árslok 2024 var 875 milljónir króna. Fram kom á sínum tíma að 20 milljörðum hefði verið varið til uppbyggingar hennar. Þá var áætlað, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verksmiðjunni í ágúst 2014, að hún myndi kosta 30-35 milljarða. Miðaðist heildarfjárfestingin við að fjórir ofnar væru í rekstri, að því er kom fram í frásögn Viðskiptablaðsins á sínum tíma.
Saga kísilverksmiðjunnar í Helguvík er því orðin löng.
Haustið 2016 sagði Morgunblaðið frá því að áætlað væri að kísilverksmiðja Thorsil í Helguvík tæki til starfa á fyrsta ársfjórðungi 2019. Ógilding starfsleyfis Umhverfisstofnunar var þá til umræðu en viðmælandi blaðsins taldi hana ekki myndu hafa áhrif á áformaða gangsetningu.
Verksmiðjuhúsið setur mikinn svip á svæðið við Helguvík og sést það úr mikilli fjarlægð.
Verkefnið var af ýmsum ástæðum umdeilt. Þá meðal annars vegna umhverfissjónarmiða.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.