Hyggst ekkert segja um mál Oscars

„Málið er enn þá undir kærufresti,“ segir Jakob Birgisson, aðstoðarmaður …
„Málið er enn þá undir kærufresti,“ segir Jakob Birgisson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, í samtali við mbl.is. Samsett mynd

Dómsmálaráðherra hyggst ekki tjá sig um mál 17 ára kólumbíska drengsins sem vísa á að óbreyttu úr landi, að sögn aðstoðarmanns.

Tug­ir manns mót­mæltu fyr­ir utan dóms­málaráðuneytið í morg­un brott­vís­un hins 17 ára Oscars And­ers Flor­ez Boca­negra en að óbreyttu verður hon­um vísað til Kól­umb­íu í dag.  Oscar flúði til Íslands­ með föður sín­um árið 2022.

Faðir Oscars er sagður hafa beitt hann of­beldi og hafa af­salað sér for­ræði yfir piltinum.

Í októ­ber 2024 var Oscar send­ur úr landi með föður sín­um eft­ir að þeir fengu synj­un. Faðir Oscars er sagður hafa yfirgefið hann við komuna í Kólumbíu, og því endaði Oscar einn á göt­unni í Bogotá, þar sem hann var í mánuð áður en fóst­ur­fjöl­skyld­an sótti hann og kom hon­um aft­ur til Íslands.

Nú á að vísa hon­um aft­ur úr landi, þar sem hon­um var synjað um málsmeðferð hér á landi á grund­velli endurtekinnar umsóknar. 

„Málið er enn þá undir kærufresti,“ segir Jakob Birgisson, aðstoðarmaður Þorbjargar Sig­ríðar Gunn­laugs­dótt­ur dóms­málaráðherra, í samtali við mbl.is. „Hún hefur ekkert afskipti af einstökum málum sem eru enn þá í vinnslu.“

Aðstandendur Oscars hafa kært ákvörðunina en það frestar ekki endilega réttaráhrifum. Frestur Oscars til að fara sjálfur úr landi rennur því út í dag. Lögmaður piltsins telur að aðstæður hans séu aðrar nú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert