Kvartanir vegna hávaða að næturlagi

Skiptar skoðanir eru um hvort rétt sé að starfrækja kjötvinnslu …
Skiptar skoðanir eru um hvort rétt sé að starfrækja kjötvinnslu í vöruskemmunni við Álfabakka 2a. mbl.is/Eggert

Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur hafa borist kvartanir frá íbúum vegna stöðugs hávaða, til að mynda að næturlagi, frá kjötvinnslu Ferskra kjötvara, dótturfélags Haga.

Þetta kemur fram í umsögn í skipulagsgátt vegna kjötvinnslunnar sem áætlað er að flytji í grænu vöruskemmuna við Álfabakka 2a. Fram undan er ákvörðun um það hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Í umsögn Reykjavíkurborgar kemur fram að borgin telji að kjötvinnsla sem þessi gæti vel samræmst gildandi aðalskipulagi Reykjavíkurborgar enda teljist hún til hreinlegrar atvinnustarfsemi sem gert er ráð fyrir á svæðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert