Landris svipað og fyrir síðasta eldgos

Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi þarf að reikna …
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi þarf að reikna með endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum á Sundhnúkagígaröðinni. mbl.is/Árni Sæberg

Landris í Svartsengi heldur áfram, en töluvert hefur dregið úr hraða þess og er það nú svipað og fyrir eldgosið sem hófst 1. apríl. 

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að á meðan kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi þurfi að reikna með endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum á Sundhnúkagígaröðinni.

Hættumatskortið hefur verið uppfært og gildir til 6. maí að …
Hættumatskortið hefur verið uppfært og gildir til 6. maí að öllu óbreyttu. Kort/Veðurstofa Íslands

Smáskjálftavirkni mælist áfram við kvikuganginn sem myndaðist 1. apríl og mældust að meðaltali um hundrað jarðskjálftar á dag í síðustu vikuÞá mældist einnig nokkur smáskjálftavirkni við Fagradalsfjall síðastliðna helgi.

Veðurstofan hefur uppfært hættumatskortið og gildir það til 6. maí að öllu óbreyttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert