Hin annars ágæta hugmynd um gjaldfrjálsar skólamáltíðir hefur bitnað verulega á gæðum. Þetta sagði Jakob Frímann Magnússon varaþingmaður Miðflokksins í ræðu á Alþingi fyrir nokkrum dögum. Sjónarmið þessi byggir hann meðal annars á reynslu sinni sem foreldri barns í Landakotsskóla í Reykjavík.
Jakob segir, í samtali við Morgunblaðið, að gæði hádegisverðarins í skóla dóttur sinnar hafi gefið verulega eftir að undanförnu. Komi þar til að nú greiðir skólinn því fyrirtæki sem sér um matseldina mun minna en áður fyrir máltíðina; 460 krónur í stað 715 króna áður. Ljóst sé að lítið verði á diski og næringargildi takmarkað þegar ekki sé gefið meira fyrir matinn.
Sjálfur kveðst hann sem foreldri gjarnan vilja borga meira svo dóttir hans fái kjarnmeiri mat. Nú sé raunar svo komið að börnin, í þeim tilvikum sem hann þekkir,
vilji ekki lengur máltíð í skólanum. Foreldrar þurfi því stundum að leggja þeim meira til strax eftir skóla svo að blóðsykursfall verði þeim ekki til trafala.
„Skólinn var að senda foreldrum óskir um að þeir sendu börn með hádegisverð í nestisboxi að heiman, því börnin hefðu ekki lyst á nýja gjaldfrjálsa matnum. Þau væru vannærð og orkuminni fyrir vikið. Ég vil gjarnan borga meira fyrir skólamat dóttur minnar, en fæ ekki, og fyrir vikið fær hún ekki þá næringu sem hún þarf. Það segir sig líka sjálft að ekki er mikil næring í máltíð sem kostar aðeins 450 krónur,“ segir Jakob.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.