Of langt gengið í þéttingu byggðar

Hér mætast stílar og stefnur og fjölbreytnin er ráðandi í …
Hér mætast stílar og stefnur og fjölbreytnin er ráðandi í línum og litum. Í Urriðaholtinu í Garðabænum. mbl.is/Sigurður Bogi

Kröfur um arðsemi setja hönnuðum húsa þröngar skorður og verða á stundum yfirsterkari gæðum í arkitektúr. Þetta segir Helga Guðrún Vilmundardóttir, nýr formaður Arkitektafélags Íslands, í viðtali við Morgunblaðið.

Þétting byggðar sé gott mál, en stundum hafi verið of langt gengið. „Þéttleiki byggðar og fjarlægð milli húsa er þannig að náttúrulegrar birtu nýtur ekki í íbúðum stóran hluta ársins,“ segir Helga. „Íbúar og notendur eiga að vera í forgrunni og íslenskur arkitektúr á að skapa þannig góðan og gefandi ramma fyrir samfélag okkar.“ 

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert