Óttast að drengnum verði vísað úr landi í skjóli nætur

„Hann vill vera hjá okkur. Hann getur ekki hugsað sér …
„Hann vill vera hjá okkur. Hann getur ekki hugsað sér að vera einhvers staðar annars staðar og hann er ekki í standi til þess. Við erum fjölskyldan hans,“ segir Sonja fósturmóðir Oscars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sonja Magnúsdóttir, fósturmóðir 17 ára kólumbísks drengs sem hefur fengið synjun um dvalarleyfi hér á landi, kveðst finna fyrir mikilli óvissu en frestur drengsins til að fara sjálfviljugur úr landi rennur út á miðnætti. 

Engar upplýsingar hafa fengist um hvenær vísa eigi drengnum úr landi, það gæti verið á morgun eða eftir tvo mánuði. 

Sonja segir drenginn finna fyrir mikilli vanlíðan vegna óvissunnar sem sé uppi. 

Beittur ofbeldi og endaði á götunni

Oscar Anders Florez Bocanegra flúði til Íslands með föður sínum árið 2022 eftir að glæpamenn í Kólumbíu hótuðu þeim lífláti. Faðir Oscars er sagður hafa beitt hann ofbeldi og hafa afsalað sér forræði yfir honum. 

Í október á síðasta ári var Oscar sendur úr landi með föður sínum eftir að hafa fengið synjun um vernd hér á landi. Oscar endaði einn á götunni í Bógotá í mánuð áður en fósturfjölskyldan kom honum aftur til Íslands.

Nú á aftur að vísa Oscari úr landi þar sem honum var synjað um málsmeðferð hér á landi á grundvelli þess að hann hefði þegar sótt um vernd. 

Segja andlega heilsu drengsins í hættu

Lögmaður Oscars kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála í gær þar sem óskað var eftir því að réttaráhrifum yrði frestað þar til málið yrði tekið fyrir hjá kærunefndinni.

Þar var meðal annars vísað í læknisbréf sem læknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans og læknar Barnaspítala Hringsins undirrituðu en þeir mæltu sterklega gegn brottvísun drengsins. Telja læknarnir að hún muni hafa gífurlega neikvæð áhrif á andlega heilsu Oscars. 

Það var fyrst í dag, nokkrum klukkutímum áður en að fresturinn rann út, sem Útlendingastofnun setti sig í samband við lögmann Oscars til að athuga hvort hann þyrfti aðstoð við að koma sér úr landi.

Brenndur af fyrri reynslu

„Hann er rosalega tættur og líður illa. Vinir hans eru að skiptast á að vera með honum því þeir vilja ekki að hann sé einn,“ segir Sonja.

Hún segir að Oscar sé enn brenndur eftir fyrri reynslu en þegar honum var vísað úr landi í október var hann sóttur inn á salerni í Flensborgarskólanum þar sem hann stundar nám.

Óttast fjölskyldan að Oscari verði vísað úr landi í skjóli nætur. 

„Hann vill vera hjá okkur. Hann getur ekki hugsað sér að vera einhvers staðar annars staðar og hann er ekki í standi til þess. Við erum fjölskyldan hans,“ segir Sonja. 

„Við ætlum ekki að gefast upp. Maður gefst ekki upp þegar börnin manns eru í hættu og við lítum orðið á hann sem eitt af okkar börnum. Við munum ekki láta senda hann út í opinn dauðann,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert