Segir „óeðlilegt“ að Ísrael taki þátt í Eurovision

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eyþór Árnason

Utanríkisráðherra Íslands telur „óeðlilegt“ að Ísrael taki þátt í Eurovision í ár með tilliti til framgöngu Ísraelshers á Gasa. Hún segist búin að tjá menningarráðherra sína „persónulegu skoðun“. Hún vill samt ekki að Ísland sniðgangi keppnina þó Ísrael taki þátt.

„Alveg eins og Rússum hefur ekki verið hleypt áfram á þessu sviði, þá finnst mér ekki óeðlilegt eftir það sem undan er gengið við botn Miðjarðarhafs, á Gasasvæðinu, að þessar spurningar komi upp þegar ítrekað er verið að brjóta á alþjóðalögum, brjóta á rétti almennra borgara til hjálparaðstoðar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í samtali við mbl.is.

Ísra­el tekur þátt í Söngv­akeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovisi­on, sem haldin verður í Basel í Sviss í maí. Þátt­taka Ísra­ela hefur verið harðlega umdeild, meðal ann­ars hér á landi, vegna stríðsins á Gasaströndinni.

Sjónvarpsstöðva að taka ákvörðun

„Ég undirstrika að þetta er mín persónulega skoðun sem almennur borgari en það er evrópskra sjónvarpsstöðva að taka ákvörðun um og þar eiga meðal annars Ríkissjónvarp og -útvarp hlut að máli.“

Þegar hafa tæplega fimm þúsund manns skrifað undir ákall til RÚV um að Ísland dragi sig úr söngvakeppninni í ár fái Ísrael að taka þátt. Þorgerður vill aftur á móti ekki að Íslendingar sniðgangi keppnina.

„Þetta er bara mín skoðun og [Logi Einarsson] menningarráðherra veit af henni,“ segir Þorgerður, spurð hvort ríkisstjórnin ætli að beita sér eitthvað vegna þátttöku Ísraels. Hún bætir við:

„En það er til dæmis líka mín skoðun að ef Ísraelar taka þátt, þá taka Íslendingar líka þátt.“

Hún bendir á að ríkisútvarp Spánverja hafi gert athugasemd við þátttöku Eurovision. Ríkissútvarp Spánar sendi samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) erindi þar sem farið var fram á „umræðu um þátttöku ísraelska ríkissjónvarpsins“ í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert