Stefnir í þrot eftir að húsið eyðilagðist í óveðri

Húsið er rústir einar eftir að hafa skemmst í óveðri …
Húsið er rústir einar eftir að hafa skemmst í óveðri í september árið 2023. Ljósmynd/Aðsend

37 ára Siglfirðingur, Hilmar Daníel Valgeirsson, segist horfa upp á gjaldþrot eftir að hús hans eyðilagðist í ofsaveðri í september árið 2023. Hann fékk hvorki bætur frá tryggingum né hamfarasjóði og Heilbrigðiseftirlitið á Norðurlandi vestra hefur sett þær kvaðir á hann að hann fjarlægi rústir hússins á eigin kostnað.

Frestur sem Hilmari var gefinn til að fjarlægja húsið er liðinn.

Að sögn Hilmars er það mat sérfræðinga að það kosti margar milljónir króna að farga húsinu og braki sem liggur líkt og hráviði um allt við það.

Slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir að íbúum og eignum stafi hætta af húsinu.

Húsið 660 fermetrar 

Hilmar starfar sem sundlaugarvörður við íþróttamiðstöðina og segir að ekki sé nokkur leið fyrir hann að leggja út fyrir þeim kostnaði sem til þarf til að rífa húsið og farga því. Húsið stendur við Aðalgötu 6b og er um 660 fermetrar að stærð. Hann bjó í húsinu sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans um langa hríð. Um er að ræða gamalt frystihús sem reist var af Óskari Halldórssyni í síldarævintýrinu á þriðja áratug síðustu aldar. 

Í febrúar síðastliðnum fuku þakplötur af húsinu á nærliggjandi hús. Meðal annars fuku þakplötur af húsinu á girðingu við grunnskóla.    

Vildi gefa bænum eignina 

Hilmar lagði til við bæinn að hann myndi yfirtaka landareignina sem tilheyrir húsinu af honum þannig að málið myndi leysast og að bærinn myndi sjá um förgun. Að sögn Hilmars vildi hann í raun gefa bænum landareignina. 

Hilmar Daníel Valgeirsson
Hilmar Daníel Valgeirsson Ljósmynd/Aðsend

Fjallabyggð leitaði álits lögfræðings í málinu sem taldi bænum ekki stætt á því að taka við húsinu og landareigninni. Að sögn Hilmars hefur honum verið tjáð að bærinn vilji ekki setja lagalegt fordæmi með gjörningnum.

„Það hafa ýmsar tölur verið nefndar um kostnaðinn við að farga þessu en þær eru allar margar milljónir króna. Í fyrstu var talað um 30-60 milljónir króna en svo einnig lægri tölur. Jafnvel þó þetta yrði tíu milljónir þá yrði það of mikið fyrir mig. Ég er sundlaugarvörður auk þess að vera nýbúinn að missa hús,“ segir Hilmar. 

Með hjartað í buxunum 

Í ofsaveðrinu sem leiddi til þess að húsið eyðilagðist árið 2023 mældust vindhviður upp á allt að 49 metra á sekúndu.

Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, segir að íbúum og eignum stafi hætta af húsinu.

Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð.
Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð. Ljósmynd/Aðsend

„Það fauk upphaflega af húsinu í september 2023 og svo aftur í febrúar á þessu ári. Í fyrra skiptið fór þak á hús, bíla og tún og í seinna skiptið fór afgangurinn af þakinu á hús,“ segir Jóhann.

Hann segir að í næsta nágrenni sé veitingahús, íbúðarhúsnæði og grunnskóli.

„Maður er eiginlega búinn að vera með hjartað í buxunum þegar djúp lægð hefur nálgast. Einn gaflinn er farinn af húsinu og því er það mjög ótraust,“ segir Jóhann.

Allir ótryggðir ef tjón verður 

Jóhann telur málið umhugsunarvert á marga vegu. Þannig greiða Náttúruhamfaratryggingar ekki tjónið þrátt fyrir að varðskipið Freyja hafi mælt vindhraða upp á 49 metra á sekúndu auk þess sem brunatryggingin nýtist ekki þar sem ekki varð tjón í bruna. 

„Þannig að ef frekara tjón í húsinu verður sem skemmir út frá sér til þriðja aðila, þá eru allir viðkomandi ótryggðir í málinu,“ segir Jóhann.  

Hann segir að bærinn hafi ekki heimild til að fara inn á svæðið og henda braki og öðru. Það sé svo pólitísk ákvörðun hvort bærinn verði við tillögu Hilmars um að taka við húsinu.

Það sem eftir var af þakplötunum fauk af í febrúar.
Það sem eftir var af þakplötunum fauk af í febrúar. Ljósmynd/aðsend

Gerir ráð fyrir því að málið endi aftur hjá bænum

Þórir Hákonarson, settur bæjarstjóri í Fjallabyggð.
Þórir Hákonarson, settur bæjarstjóri í Fjallabyggð. Jóhann G. Kristinsson

Þórir Hákonarson, settur bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að leitað hafi verið álits lögfræðings um það hvort bænum hafi verið stætt að kaupa eignina. Segir hann að talað hafi verið um uppkaup frekar en yfirtöku sökum þess að Hilmar hafi viljað fá hluta fasteignagjalda endurgreiddan.

„Bæjarráð hafnaði því eftir að lögfræðingur hafði farið yfir málið. Málið er í ferli hjá  heilbrigðiseftirlitinu og það eru ekki við sem erum að gera kröfu á manninn. Ég geri ráð fyrir því að málið endi á borði hjá okkur aftur ef ekkert verður brugðist við. Þá munum við ræða við manninn,“ segir Þórir.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert