Blaðamannafélag Íslands tapaði 8,6 milljónum á síðasta ári eftir að hafa hagnast um tæplega 44 milljónir árið áður. Viðsnúningur félagsins er því neikvæður um sem nemur um 52 milljónum.
Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem ekki er birtur opinberlega en var kynntur fyrir félagsmönnum á aðalfundi á dögunum.
Rekstrartap félagsins nam 32,5 milljónum, samanborið við ríflega 18 milljóna króna rekstrarhagnað á síðasta ári.
Tekjur félagsins námu 208 milljónum en þær héldust að mestu óbreyttar á milli ára, að undanskildum „öðrum tekjum“ sem jukust úr tæpum 30 milljónum í 38 milljónir milli ára.
Rekstrargjöld félagsins jukust aftur á móti umtalsvert en þau námu ríflega 240 milljónum króna, samanborið við 177 milljónir árið áður. Þar af jukust laun og launatengd gjöld um rúmar 18 milljónir og „annar rekstrarkostnaður“ um tæpar 50 milljónir.
Blaðamannafélagið réðst í vitundarherferð á síðastliðnu ári auk úttektar á tilteknum færslum í bókhaldi Blaðamannafélagsins í tíð fyrrverandi framkvæmdastjóra. Hjálmar Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins, gagnrýndi formann félagsins, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, m.a. fyrir að neita að gera hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar meint skattalagabrot. Hjálmari var sagt upp störfum en formaðurinn kveður uppsögnina ekki tengjast gagnrýni hans.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.