Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, hafa efasemdir um þau áform Veitna að banna umferð bíla í Heiðmörk.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segist ekki hafa fengið neina kynningu frá Veitum.
„Við verðum að fá álit á því hvort það sé virkilega nauðsynlegt að ganga svona langt í þessum efnum. Að minnsta kosti hefur það ekki komið til umræðu hér í Kópavogsbæ og kom okkur algjörlega í opna skjöldu þegar við lásum þetta í Morgunblaðinu nú um páskana.“
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir Veitur nýlega hafa kynnt fyrir bæjaryfirvöldum í Garðabæ hugmyndir um takmörkun á bílaumferð í Heiðmörk og að hann viti til þess að viðræður séu í gangi milli Veitna og Reykjavíkurborgar um þetta mál.
„Ég hvatti til þess að þessi mál yrðu skoðuð með lausnamiðuðum hætti. Það eru allir sammála um vatnsvernd og svo getum við valið hvaða leiðir verða farnar að því markmiði.“ Spurður hver afstaða hans sé til bílabanns í Heiðmörk segist Almar vilja tryggja vatnsvernd og að almenningur eigi greitt aðgengi að þessum svæðum. Allsherjarbílabann um Heiðmörk komi ekki til greina.
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir sín fyrstu viðbrögð þau að of langt sé gengið ef banna á bílaumferð almennings um Heiðmörk en tekur fram að fulltrúar bæjarins hafi fullan skilning á mikilvægi vatnsverndar. „Þetta svæði er gífurlega mikið notað og því er mikilvægt að þarna sé gott aðgengi almennings. Við þurfum að finna einhverja lausn með Veitum um hvernig svo geti orðið áfram.“
Ekki náðist í Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra, en Reykjavíkurborg er aðaleigandi Veitna.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.