Hættuleg gatnamót í borginni lagfærð

Gangbrautin þverar götuna og ökumenn þurfa að fylgjast með gangandi/hjólandi …
Gangbrautin þverar götuna og ökumenn þurfa að fylgjast með gangandi/hjólandi og bílaumferðinni. mbl.is/sisi

Að undanförnu hefur verið unnið að tillögum að breytingum á gatnamótum, strætóstöðvum og gönguþverun á Háskólasvæðinu í Vatnsmýri.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Vegagerðina með það að markmiði að bæta umferðaröryggi á svæðinu.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum nýlega að veita heimild fyrir umferðaröryggisúrbótum á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu, og á strætóstöðvum og gönguþverun yfir Njarðargötu við Sturlugötu.

Gönguþveranir yfir framhjáhlaup verði upphækkaðar í hæð gangstétta og bæta á lýsingu með það að markmiði að gera gangandi og hjólandi vegfarendur sýnilegri. Leggja á áherslufleti og leiðarlínur fyrir sjónskerta og framkvæma minni aðgerðir meðfram gönguleiðum í umferðareyjum. Ætlunin er að minnka fallhættu, þar sem kantar verða fjarlægðir og fláar settir í stað þeirra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert