Óskar eftir tilboðum í verðlaunastyttur

Friðrik Þór hefur auglýst verðlaunasafn sitt til sölu á Facebook.
Friðrik Þór hefur auglýst verðlaunasafn sitt til sölu á Facebook. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Facebook

„Ég bý bara í lítilli íbúð og hef ekki pláss fyrir þetta. Þetta var í Kvikmyndaskólanum sem skraut og nú þarf ég að losa þetta þaðan og koma þessu fyrir einhvers staðar. Svo er koparverð að hækka.“

Þetta segir Friðrik Þór Friðriksson verðlaunakvikmyndaleikstjóri sem sett hefur verðlaunasafn sitt á sölu á Facebook.

Friðrik var rektor Kvikmyndaskólans í fimm ár frá 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert