Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi

Sérsveitin er á leið austur en ekki hafa fengist upplýsingar …
Sérsveitin er á leið austur en ekki hafa fengist upplýsingar um hvert verkefnið sé. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur verið kölluð út til aðstoðar lögreglunni á Suðurlandi.

Þetta staðfestir Helena Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.

Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, segist ekki geta veitt nánari upplýsingar um eðli útkallsins að svo stöddu. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert