Sólveig Anna úr Sósíalistaflokknum

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins Eflingar, hefur sagt sig úr …
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins Eflingar, hefur sagt sig úr Sósíalistaflokknum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins Eflingar, er gengin úr Sósíalistaflokknum í kjölfar orðasennu þeirrar Maríu Pétursdóttur, fyrrverandi formanns málefnastjórnar flokksins, í Facebook-hópnum Rauða þræðinum, umræðuvettvangi um samfélagsmál og sósíalisma.

Birtir Sólveig Anna pistil Maríu frá því fyrr í dag, við sinn eigin pistil, þar sem María ritar meðal annars að Sólveig Anna haldi áfram að „tala beint inn í“ öfgahægrið og fasismann vegna þess að hún hafi lesið það í „einhverri fucking bók“. „Þú ert svo vandræðalega stolt yfir því að kunna að lesa þrátt fyrir að vera óskólamenntuð,“ skrifar fyrrverandi formaður málefnastjórnarinnar í pistli sínum.

Áfram heldur málefnaformaðurinn sem var og segir Sólveigu Önnu ekki aðeins barnalega heldur fari hún einnig með sigurorð af hólmi í vorkunnarkeppninni. Sakar hún Eflingarformanninn um að vera einangrunarsinna sem tali gegn mannréttindum og lýkur máli sínu með því að bjóða Sólveigu Önnu að halda bara áfram að hlæja, „eins og einhver týpa úr lélegri hryllingsmynd“.

Eins konar hættulegur glæpamaður

„Það er dálítið langt síðan ég hef séð svona mikið hatur á mér,“ skrifar Sólveig Anna. Í nokkur ár hafi það þó verið stemmningin víða. „Að ég væri einhverskonar hættulegur glæpamaður – sem allt gott fólk ætti að hata. Það er undarlegt að sjá þessa skoðun lifa góðu lífi innan Sósíalistaflokksins á sama tíma og hún hefur að mestu gengið niður annarsstaðar,“ skrifar hún enn fremur.

„Við að lesa svívirðingarnar, þar sem ein af forystukonum flokksins líkir mér við fasista og segir mig tala gegn mannréttindum er mér ljóst að ég á ekki lengur heima í Sósíalistaflokknum,“ heldur Sólveig Anna áfram. Þetta þyki henni leitt en við því sé þó aðeins eitt að gera.

„[A]ð hætta í flokknum sem ég geri hér með. Ég get ekki tilheyrt hópi þar sem að stemmningin er orðin svona yfirgengilega biluð,“ eru lokaorð Sólveigar Önnu í pistlinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert