Sumarið byrjar með betra móti

Hiti gæti náð 12 stigum fyrir sunnan, en 5-10 annars …
Hiti gæti náð 12 stigum fyrir sunnan, en 5-10 annars staðar. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er hlýrra loft að koma yfir landið og ský verða hátt á lofti og líklega á milli 10 og 12 stiga hiti á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Teitur Arason um veðurspána fyrir sumardaginn fyrsta.

„Það er búist við austanátt, um 10 m á sek. Og það verður þurrt og nokkuð þokkalega bjart og ekki gert ráð fyrir að það fari að rigna sunnanlands fyrr en á föstudaginn.“

Teitur segir að svipað veður verði á vestan- og norðanverðu landinu þar sem verði bjart veður og þurrt. „Það verður austlæg gola, 3-8 m á sek. og hitinn verður 5-10 gráður, en gæti laumast upp í 10 gráður yfir hádaginn þegar sól er hæst á lofti.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert