Þrír karlmenn sitja enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á máli er varðar meinta frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp sem upp kom 10. mars síðastliðinn en maður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést á sjúkrahúsi stuttu síðar.
Gæsluvarðhald yfir mönnum þremur var framlengt um fjórar vikur þann 9. apríl síðastliðinn en á tímabili voru sjö í varðhaldi vegna málsins.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir við mbl.is að rannsókn málsins sé enn þá í fullum gangi. Hann segir að allir þeir sem hafi verið handteknir í tengslum við málið séu með stöðu sakbornings.
„Við erum enn að afla gagna í málinu en við keppumst við að reyna að ljúka rannsókninni eins fljótt og hægt er. Þetta er yfirgripsmikið mál en við reynum að skila því frá okkur sem allra fyrst,“ segir hann.