Malasíska félagið Berjaya Food Berhad mun opna tvö kaffihús hér á landi undir merkjum Starbucks og mun það fyrsta opna í maí næstkomandi.
Fram kemur í tilkynningu að kaffihúsin verði staðsett í miðbæ Reykjavíkur og verður tilkynnt um nákvæma staðsetningu og tímasetningu á opnun þeirra á næstu vikum.
Í tilkynningunni segir að rekstur kaffihúsanna verði í höndum malasíska fyrirtækisins Berjaya Food Berhad í gegnum systurfélag sitt Berjaya Food International, sem hefur tryggt sér rekstrarleyfi Starbucks í Finnlandi og Danmörku auk Íslands.
Hönnun staðanna og þjónusta mun taka mið af því sem viðgengst á Starbucks í Malasíu. Á kaffihúsunum verður lögð áhersla á persónulegt og hlýlegt andrúmsloft með fjölbreytt úrval af kaffidrykkjum og veitingum sem Starbucks er þekkt fyrir um heim allan.
„Við erum spennt að geta loksins kynnt Starbucks fyrir Íslendingum og vonumst til að kaffihúsin verði áfangastaður fyrir frábært kaffi og góðar samverustundir,“ segir Dato’ Sydney Quays, forstjóri Berjaya Food Berhad.
„Við hlökkum til að kynna hið einstaka Starbucks-andrúmsloft ásamt hlýlegri malasískri gestrisni. Á sama tíma leggjum við áherslu á að styrkja íslenskt samfélag með því að skapa atvinnu og eiga í samstarfi við innlend fyrirtæki með kaupum á vörum og þjónustu,“ bætir hann við.