Flugmanni háþekju var brugðið á dögunum þegar hann heyrði mikið högg skömmu eftir flugtak frá Reykjavíkurflugvelli.
„Ég var nýfarinn í loftið og var á leið eitt í 1.500 fetum og tók eftir því að við ströndina, kannski þúsund fetum fyrir neðan mig, voru mávar. Svo heyrðist mikill skellur en tilfinningin var að eitthvað hefði farið í dekkið. Svo leit ég í kringum mig en sá ekkert. Flugvélin er háþekja og ég sá því ekki framan á vænginn,“ segir flugmaðurinn sem flaug vélinni.
Skemmdin kom strax í ljós enda er annar vængurinn illa farinn.
„Þetta skerti flughæfni vélarinnar. Ég vildi því koma beint til lendingar. Ef ég hefði verið úti á landi hefði ég líkast til reynt að finna lítinn flugvöll til að lenda. Við flugmenn erum enda þjálfaðir í að bregðast skjótt við aðstæðum. Í þessu tilviki var rétt að óska strax eftir að koma til lendingar og ég fékk þau skilaboð úr flugturninum að ég mætti fara stystu leið og velja hvaða braut sem er til lendingar,“ segir flugmaðurinn sem var lentur fimm mínútum síðar.
„Ég var farinn að líta í kringum mig hvort ég gæti ekki bara lent á veginum á Kjalarnesinu en hún flaug ágætlega þannig að ég ákvað að fljúga á Reykjavíkurflugvöll. Ef það hefði eitthvað farið í hreyfilinn hefði ég líklegast þurft að nauðlenda á veginum við Esjuna,“ segir flugmaðurinn að endingu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.