Enn annar vasaþjófurinn handtekinn í Reykjavík

Greint hefur verið frá svokölluðu „vasaþjófa­gengi“ sem herjað hef­ur á …
Greint hefur verið frá svokölluðu „vasaþjófa­gengi“ sem herjað hef­ur á ferðamenn á Suður­landi að und­an­förnu. mbl.is/sisi

Lögregla handtók í dag meintan vasaþjóf í miðbæ Reykjavíkur og lét hann dúsa í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Fréttir af vasaþjófum hafa verið áberandi að undanförnu. Síðasta föstudag barst lögreglunni á höfuðborg­ar­svæðinu til­kynn­ing um þrjá þjófa í miðbæ Reykja­vík­ur sem voru grunaðir um vasaþjófnað.

Herja á ferðamenn

Greint hefur verið frá svokölluðu „vasaþjófa­gengi“ sem herjað hef­ur á ferðamenn á Suður­landi að und­an­förnu.

Einn af eigendum Gullsmiðju Ófeigs sagði við mbl.is á dögunum að hið svo­kallaða vasaþjófagengi hefði rænt verslunina. Gengið er talið vera tíu manna hópur er­lendra ein­stak­linga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert