Sumarið heilsar með góðu veðri víða um land og gæti hitinn náð allt að 15 stigum á Suðvesturlandi í dag.
Í dag verða austan og suðaustan 8-15 m/s sunnanlands en annars hægari vindur. Það verður lítilsháttar væta á Suðausturlandi og á Austfjörðum en lengst af léttskýjað um landið norðan- og vestanvert. Hitinn verður á bilinu 5 til 15 stig og verður hlýjast suðvestan til.
Á morgun verða suðaustan 5-13 m/s. Það verður rigning suðaustanlands, en annars væta með köflum, en lengst af þurrt norðaustan til. Hitinn verður 5 til 13 stig og verður svalast við austurströndina.