Þrír karlmenn sem eru til rannsóknar hjá lögreglu vegna tveggja hópnauðgana hafa verið settir á bannlista á English Pub, skemmtistað sem þeir eru sagðir hafa sótt.
Eigendur annarra skemmtistaða í Reykjavík hafa jafnframt verið varaðir við mönnunum þremur.
Þetta kemur fram í umfjöllun Ríkisútvarpsins.
Þar segir að mennirnir þrír séu spænskumælandi. Enginn þeirra sætir gæsluvarðhaldi en einn er þó í farbanni.
Tvær konur lögðu fram kæru til lögreglu vegna hópnauðgana sem áttu sér stað með stuttu millibili í lok síðasta mánaðar. Grunur er um að þeir hafi byrlað konunum ólyfjan á sama skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur og teknar í sömu íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem brotið var á þeim klukkustundum saman.
Konurnar tvær þekkjast ekki.
Réttargæslulögmaður kvennanna telur að um skipulögð brot sé að ræða.