Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er kominn í atvinnuleit en í nýlegu viðtali lýsti hann yfir áhuga á því að verða bæjarstjóri í Vogum, Suðurnesjabæ, Grindavík eða Reykjanesbæ.
Hann bar sig saman við ósamningsbundinn leikmann sem gæti í raun verið „alls staðar.“
Þetta kemur fram í viðtali Víkurfrétta við Ásmund.
Ásmundur Friðriksson féll úr þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á kjördæmisþingi fyrir síðustu þingkosningar.
„Ég er tilbúinn til forystu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og láta gott af mér leiða, margir hafa leitað til mín og hvatt mig til dáða að skella mér í bæjarmálin,“ sagði hann.
Þegar Ásmundur var spurður um stöðuna í Grindavík kvaðst hann hafa áhuga á því að taka við stjórnartaumunum þar en einnig í Suðurnesjabæ eða Vogum.
„Það má kannski líkja mér við ósamningsbundinn leikmann í íþróttum, ég er engum bundinn og get talað við þau lið sem hafa áhuga á mér. Ég hef átt samtöl við fólk í Suðurnesjabæ, Vogum og Grindavík og þau vita af mér. Ég get alls staðar verið, er mjög hreyfanlegur en einhverjum kann að finnast skrítið að maður á mínum aldri sé í svona pælingum,” segir Ásmundur en hann er 69 ára.