Bitinn af ókunnugum hundi

Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- …
Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Hafnarfirði í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Maður var bitinn af ókunnugum hundi í Árbænum fyrr í dag. Var lögregluskýrsla rituð og maðurinn fluttur á slysadeild til frekari skoðunar.

Þá var lögreglu tilkynnt um árekstur í Mosfellsbæ þar sem ökumaður hafði stungið af og er málið til rannsóknar.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 5 til 17 í dag.

Tilkynnt um rásandi aksturslag

Ökumaður var stöðvaður í Garðabæ þar sem hann ók á 119 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.

Sömuleiðis var ökumaður stöðvaður í miðbæ Hafnarfjarðar en hann ók á 111 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. 

Til vandræða fyrir framan húsnæði

Þá var lögreglu einnig tilkynnt um um rásandi aksturslag í miðbæ Hafnarfjarðar.

Var ökumaðurinn fljótlega stöðvaður af lögreglumönnum og handtekinn í kjölfarið vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einnig kom í ljós að ökumaðurinn var án ökuréttinda.

Lögreglu var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Kópavogi og er málið í rannsókn og svo var tilkynnt um manneskju sem var til vandræða fyrir framan húsnæði í Hlíðahverfi Reykjavíkur og var henni vísað á brott án vandræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert