Björn plokkar í fjarveru Höllu

Forseti Íslands kemur ekki til landsins fyrr en eftir hádegi …
Forseti Íslands kemur ekki til landsins fyrr en eftir hádegi á sunnudag. mbl.is/Karítas

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, mun setja Stóra plokkdaginn á sunnudaginn í stað Höllu sem verður vant við látin á leið heim í útför Frans páfa.

Auglýst hafði verið að Halla myndi setja Stóra plokkdaginn við Sorpu í Breiðholti klukkan 10, sunnudaginn 27. apríl, en það verkefni kemur í hlut Björns.

Halla er nú á leið til Rómar þar sem hún verður við útför Frans páfa á morgun, en hún á flug aftur heim til Íslands um hádegi á sunnudag, samkvæmt Sif Gunnarsdóttur forsetaritara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert