Car Rental Iceland, Deloitte og Árvakur efst

Alþjóðameistarinn Björn Þorfinnsson leiddi vinningslið Car Rental Iceland en með …
Alþjóðameistarinn Björn Þorfinnsson leiddi vinningslið Car Rental Iceland en með honum voru Örn Leó Jóhannsson og Jóhann Ingvason. mbl.is/Karítas

Það var hart barist í Skákkeppni stofnana og fyrirtækja sem haldin var síðasta miðvikudagskvöld hjá Taflfélagi Reykjavíkur í Faxafeni.

Mótið var sjö umferðir og teflt samkvæmt svissneska Monrad-kerfinu með tímamörkunum 5+3, þ.e. fimm mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik.

Í fyrsta sæti á mótinu varð fyrirtækið Car Rental Iceland, með alþjóðlega meistarann Björn Þorfinnsson ritstjóra DV á fyrsta borði, en samkvæmt reglum mótsins má einn maður í liði vera lánsmaður. Í öðru sæti varð síðan Deloitte með tvær skáklandsliðskonur innanborðs, þær Hallgerði Þorsteinsdóttur og Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert