Ekki þörf á fundi í dag þar sem vinnufundurinn á Þingvöllum gekk vel

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur átti góðan vinnufund á Þingvöllum í vikunni.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur átti góðan vinnufund á Þingvöllum í vikunni. mbl.is/Ólafur Árdal

Vinnufundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum á þriðjudag gekk vel. Svo vel gekk ríkisstjórninni að fara yfir málin að ekki var talin þörf á reglubundnum ríkisstjórnarfundi í dag.

Ólafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Stjórnin ræddi verkefnin

Þrír ráðherrar voru fjarverandi á þriðjudag, einn vegna veikinda en Inga Sæland, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra og Eyj­ólf­ur Ármanns­son innviðaráðherra voru erlendis.

Vinnufundur ríkisstjórnarinnar á þriðjudag var annar vinnufundur hennar síðan stjórnin var mynduð.

Ekki fengust upplýsingar frá Ólafi um hvaða mál voru á dagskrá fundarins. Sagði hann ríkisstjórn einfaldlega hafa verið að ræða verkefnin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert