Eyjalín fékk Morgunblaðsskeifuna í ár

Verðlaunahafar á Skeifudeginum í gær, frá vinstri Einar Ágúst Ingvarsson, …
Verðlaunahafar á Skeifudeginum í gær, frá vinstri Einar Ágúst Ingvarsson, Ingiberg Daði Kjartansson, Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir, sem fékk Morgunblaðsskeifuna og fleiri verðlaun, og Laufey Ósk Grímsdóttir. mbl.is/Theodór Kr. Þórðarson

Skeifudagurinn fór fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í gær, sumardaginn fyrsta. Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann Morgunblaðsskeifuna þetta árið og sópaði auk þess að sér fjölda annarra verðlauna. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor skólans afhenti Eyjalín Morgunblaðsskeifuna.

Dagurinn var haldinn í hestamiðstöð skólans á Mið-Fossum. Nokkur strekkingur var þar fyrir utan en nánast logn niðri á Hvanneyri þar sem verðlaunaafhendingin fór fram í Ásgarði.

Skeifudagurinn er nokkurs konar uppskeruhátíð nemenda sem útskrifast úr reiðmennskuáföngum við bændadeild Landbúnaðarháskólans. Hestamannafélagið Grani stendur að hátíðinni, í samstarfi við skólann, en það var stofnað meðal nemenda Bændaskólans á Hvanneyri árið 1954. Hefur dagurinn lengst af verið haldinn sumardaginn fyrsta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert