Golfið lifir góðu lífi í Grindavík

Flatirnar þykja koma einkar vel undan vetri í Grindavík. Kylfingar …
Flatirnar þykja koma einkar vel undan vetri í Grindavík. Kylfingar flykktust þangað um páskana. Ljósmynd/Visit Reykjanes

Þótt fjöldi fólks hafi flust búferlum frá Grindavík vegna náttúruhamfara þá eru kylfingar í Golfklúbbi Grindavíkur í góðri sveiflu að því er virðist. Þar eru félagar í kringum 300 talsins eftir að farið var í átak til að halda félögum og fá gamla til baka.

„Staðan var eiginlega þannig hjá okkur að við þurftum gera eitthvað eða hreinlega hugsa um að hætta þessu. Sú ákvörðun var tekin að lækka árgjaldið í klúbbnum niður í 44.900 krónur. Gerðum við það aðallega til að halda í okkar fólk sem flutti í önnur bæjarfélög en einnig til að trekkja að þennan stóra hóp kylfinga á höfuðborgarsvæðinu sem kemst ekki í golfklúbb á því svæði. Þar er víða yfirfullt en með hálftíma akstri er staðan önnur. Þetta hefur slegið í gegn og við höfum fengið mikið af nýjum meðlimum frá höfuðborgarsvæðinu. Það eru allir rosalega ánægðir með aðstöðuna hjá okkur,“ segir Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur, þegar Morgunblaðið forvitnaðist hjá honum um gang mála þegar sumarið er handan við hornið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert