Isavia gyrði sig í brók: „Nú er nóg komið“

Jens segir að framkvæmd á lögum um leigubifreiðaakstur frá 2022 …
Jens segir að framkvæmd á lögum um leigubifreiðaakstur frá 2022 hafi algjörlega mistekist. Samsett mynd/mbl.is

Forstjóri og stjórnarformaður Isavia hafa ekki gefið kost á sér til viðtals og ekki heldur fjármála- og efnahagsráðherra vegna kaffiskúrs í eigu ríkisfyrirtækisins sem ákveðnir aðilar hafa breytt í bænahús. 

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að Isavia þurfi að „gyrða sig í brók“ vegna ástandsins sem hefur skapast á Keflavíkurflugvelli. 

Kaffiskúrinn á að vera í boði fyrir leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli en eins og greint hefur verið frá þá hefur leigubílstjórum verið meinaður aðgangur að honum af öðrum leigubílstjórum sem hafa lagt undir sig skúrinn fyrir bænahald. 

Æðstu stjórnendur tjá sig ekki

Upplýsingafulltrúi Isavia vildi ekki svara spurningum mbl.is fyrr í dag um það af hverju aðstaðan hefði verið tekin fyrir bænahald né þá hversu lengi Isavia hefði vitað af þessu. 

Nýskipaður stjórnarformaður Isavia, Steinþór Pálsson, vildi ekki tjá sig við mbl.is og upplýsingafulltrúi Isavia sagði ekki möguleika á því að fá viðtal við forstjóra Isavia í dag, og jafnvel ekki eftir helgi.

Þá hefur Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ekki svarað fyrirspurnum um viðtal. 

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra skipti nýverið út öllum í stjórn …
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra skipti nýverið út öllum í stjórn Isavia nema einum stjórnarmanni. Hann hefur ekki svarað fyrirspurnum mbl.is um Isavia. Morgunblaðið/Karítas

„Ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta“

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar á facebook að Isavia þurfi að „gyrða sig í brók.“

„Nú er nóg komið! Það er greinilegt að framkvæmd á lögum um leigubifreiðaakstur frá 2022 hefur algjörlega mistekist. Kröfur til þeirra sem keyra leigubifreiðar virðast litlar sem engar og ófremdarástand, svo vægt til orða sé tekið, ríkir á leigubílamarkaði. Neytendavernd er engin og fréttir, og nýlegir dómar, sýna að öryggi notenda er ógnað.“

Hann segir augljóst að fyrir þinglok í vor verði að breyta umræddum lögum og herða kröfur til þeirra sem keyra leigubifreiðar sem og þeirra sem reka leigubílastöðvar.

„Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta lengur. Þangað til verður Isavia að gyrða sig í brók vegna ástandsins sem skapast hefur á Keflavíkurflugvelli,“ skrifar Jens.

Fréttamanni vísað frá

Haft var eft­ir leigu­bíl­stjóra í frétt­um RÚV að kaffiaðstaða leigu­bíl­stjóra væri nú „bæna­hús“ og að menn hefðu ekki einu sinni aðgengi að kló­setti þar sem húsið væri upp­tekið und­ir bæna­hald mús­líma.

Í frétt­um má sjá að frétta­manni er vísað frá á meðan bæna­hald er í gangi inn­an­dyra.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hjólaði einnig í Isavia í kjölfar frétta af málinu. 

„Allt í einu ertu lentur í samkeppni við menn hvaðan æfa að úr heiminum sem þurfa ekki að uppfylla sömu skilyrði og þú. Ganga fram eins og þeim sýnist og rukka jafnvel að vild.

Svo máttu ekki eini sinni fara inn í kaffiskúrinn þinn til að pissa af því að hofmóðugt ríkisfyrirtæki er búið að breyta honum í bænahús fyrir þá sem tóku af þér vinnuna,“ skrifaði Sigmundur á facebook. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert