Mörg börn með alvarlegan vanda bíða eftir meðferð

Nokkur fjöldi barna bíður eftir að komast í viðeigandi meðferð.
Nokkur fjöldi barna bíður eftir að komast í viðeigandi meðferð. Samsett mynd/Colourbox/Karítas

Sex börn með alvarlegan fíkni- og hegðunarvanda bíða nú eftir því að komast í greiningu og meðferð á meðferðarheimilinu Blönduhlíð sem tímabundið er rekið á Vogi. Sex pláss eru í Blönduhlíð og eru þau öll full eins og staðan er í dag.

Þá bíður eitt barn eftir því að komast í langtímameðferð, að fram kemur í skriflegu svari Barna- og fjölskyldustofu við fyrirspurn mbl.is. En barnavernd hefur óskað eftir því að tvö önnur börn sem hafa verið á biðlista fari ekki í meðferð að svo stöddu. 

Það að aðeins eitt barn sé á biðlista eftir langtímameðferð gefur þó ekki endilega alveg rétta mynd af stöðunni. Samkvæmt heimildum mbl.is er einungis hægt að vera á biðlista eftir einu meðferðarúrræði í einu og gætu börn sem vitað er að þurfa á langtímameðferð að halda verið skráð á aðra biðlista. 

Þegar svarið fyrir páska barst voru einnig sjö börn á biðlista eftir svokallaðri MST-fjölkerfameðferð.

Óskað eftir að börn fari ekki í meðferð

Ekkert langtímameðferðarheimili fyrir drengi hefur verið starfrækt í rúmt ár, eða frá því Lækjarbakka var lokað vegna myglu í apríl í fyrra. Drengir með mjög þungan vanda hafa þó í einhverjum tilfellum verið vistaðir í langtímameðferð á Stuðlum, en þar eru einnig börn í gæsluvarðhaldi og afplánun.

Blöndun ólíkra tilfella með ólíkan vanda á Stuðlum hefur verið gagnrýnd, en erfitt hefur reynst að aðskilja börn vegna aðstöðuleysis. Nú eru þrjú börn í meðferðarvistun á Stuðlum, en eftir brunann í október eru þar aðeins fjögur pláss.

Í svari Barna- og fjölskyldustofu segir að barnaverndarþjónustan hafi óskað eftir því að tvö börn, sem umsókn liggur fyrir um langtímameðferð, fari ekki í meðferð að svo stöddu. Hvort það er vegna ástandsins á Stuðlum kemur þó ekki fram. 

Til stendur að opna meðferðarheimilið Lækjarbakka á nýjum stað í Gunnarsholti á Rangárvöllum, en það verður í fyrsta lagi í haust. 

Á meðferðarheimilinu Bjargey í Eyjafirði voru sex börn í langtímameðferð þegar svar barst frá Barna- og fjölskyldustofu fyrir páska, en þar eru sex pláss fyrir stúlkur og kynsegin einstaklinga.

Gert er ráð fyrir að barnið sem bíður eftir langtímameðferð verði innritað í maí, sem verður þá væntanlega annað hvort á Bjargey eða Stuðla.

Segja biðtíma eftir MST-meðferð stuttan

Þá voru sjö börn á biðlista eftir MST-fjölkerfameðferð sem fer fram inni á heimili barnsins, en flestir skjólstæðingar Barna- og fjölskyldustofu sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda, vímuefnaneyslu og afbrot fara í gegnum MST-meðferð. 

Er það yfirleitt fyrsta inngrip þegar barn er farið að sýna mikla áhættuhegðun, en úrræðið hentar ekki þegar vandi barnsins er orðinn alvarlegur, að mati starfsfólks barnaverndarþjónustunnar.

Í svari Barna- og fjölskyldustofu segir að biðtíminn sé almennt stuttur, en um 60 til 75 fjölskyldur eru í slíkri meðferð á hverjum tíma. Á hverju ári fá um 130 fjölskyldur MST-meðferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert