Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að samningi um að þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi verið sagt upp á miðvikudaginn. Tólf manneskjum verður sagt upp hjá borginni frá og með 1. maí í kjölfar þess að samningnum var sagt upp.
Samningurinn hefur verið til staðar í nokkur ár og hafa framlög frá ríkinu verið um milljarður króna á ári.
„Við höfum verið að þjónusta allt að þrjú hundruð umsækjendur. Ég á von á því að Vinnumálastofnun sé að segja samningnum upp því verulega hefur fækkað í þessum hópi. Vinnumálastofnun hefur sjálf verið að þjónusta hluta af þessum hópi og geri ég ráð fyrir því að hún muni taka verkefnin alfarið til sín,“ segir Rannveig.
Hún segir að samningurinn hafi snúið að því að aðstoða fólk á meðan það beið eftir að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd væri til umfjöllunar í kerfinu.
„Fólkið sem er að missa vinnuna er orðið mjög sérhæft í málaflokknum. Uppsagnir taka gildi frá og með 1. maí og er starfsfólk á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Við munum leita leiða til þess að finna önnur störf í kerfinu hjá okkur því þetta er mjög dýrmætt starfsfólk.“
Hún segir að enn sé óljóst hvaða upplýsingum sé hægt að veita til fólks sem notið hefur þjónustu borgarinnar í málaflokknum.
„Við vitum ekki hvað mun breytast þegar fólk fer til annars þjónustuaðila. Það er fram undan hjá okkur að fá upplýsingar um það,“ segir Rannveig.