Veit ekki til þess að fleiri konur hafi stigið fram

Skemmtistaðaeigendur í borginni hafa verið varaðir við mönnunum.
Skemmtistaðaeigendur í borginni hafa verið varaðir við mönnunum. mbl.is/Ari

Réttargæslumaður tveggja kvenna sem kært hafa þrjá menn fyrir hópnauðgun veit ekki til þess að fleiri konur hafi stigið fram eða sett sig í samband við þær vegna sambærilegra mála. Hann bendir þó á að málið sé nýkomið upp og því geti það enn gerst að fleiri stigi fram.

Konurnar vildu vekja athygli á málinu, bæði til að vara aðrar konur við mönnunum, sem ganga enn lausir þó að vitað sé hverjir þeir eru, og hvetja aðrar konur til að leggja fram kæru, hafi þær lent í því sama.

Brotið var á konunum með tveggja vikna millibili, en þær þekktust ekki. Fram hefur komið að brotin virðast þaulskipulögð. Grunur leikur á því að konunum hafi verið byrluð ólyfjan á skemmtistað í borginni og svo farið með þær í sömu íbúð í Vesturbænum þar sem brotið var á þeim klukkustundum saman.

Lögreglan hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum þremur, en einn þeirra hefur verið úrskurðaður í farbann. Fram hefur komið að þeir séu spænskumælandi.

Sérstök rök þurfi að vera að baki

Einar Hugi Bjarnason, réttargæslumaður kvennanna, segir mjög sérstakt að mennirnir gangi lausir.

„Það þurfa að vera einhver sérstök rök að baki sem lögreglan þarf að svara fyrir,“ segir Einar og bendir á að einn hafi þó verið úrskurðaður í farbann.

„Það hefur greinilega verið tekin ákvörðun um að gera það, en lögreglan af einhverjum ástæðum ekki viljað ganga lengra og fara fram á gæsluvarðhald.“

Þá bendir hann á að lögregla hafi ekki viljað svara því hvort almenningi stafi hætta af mönnunum.

Eigendur skemmtistaða í borginni hafa verið varaðir við mönnunum en fram kom í frétt RÚV í gær að þeir væru á bannlista á einhverjum stöðum og hefðu meðal annars haldið til inni á og fyrir utan English Pub.

Vonar að lögreglan flýti málsmeðferð

Líkt og fram hefur komið hafa konurnar tvær lagt fram kæru á hendur mönnunum og vonast Einar til að lögreglan „taki mjög þétt á málinu og rannsaki það til fulls og flýti meðferð málsins líka“.

Hann segir það almennt mjög bagalegt hvað málsmeðferðartími í kynferðisbrotamálum er langur.

„Það er vonandi að þessi umfjöllun sem hefur átt sér stað síðustu daga ýti aðeins við lögreglunni að fylgja málinu fast eftir,“ segir Einar.

Athyglisvert hafi verið að heyra að mennirnir séu þekktir hjá eigendum skemmtistaða og að boð hafi verið látin ganga um að þeir séu hættulegir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert