Halla og Biden hittust í Róm

Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Ljómsynd/Instagram/hallatomas

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Joe Biden, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hittust á Péturstorginu í Róm í dag er þau voru viðstödd útför Frans páfa.

Það virtist fara vel á með forsetanum fyrrverandi og Höllu en þau létu að sjálfsögðu mynda sig saman. Halla birti myndina á samfélagsmiðlum sínum.

Heimurinn misst mikilvægan leiðtoga

Halla var viðstödd útför páfa ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Ein­ari Gunn­ars­syni, sendi­herra Íslands gagn­vart Páfag­arði.

Halla minntist Frans páfa á dögunum og sagði heim­inn hafa misst mik­il­væg­an leiðtoga sem hafði kær­leika og um­hyggju fyr­ir þeim sem minnst mega sín ávallt í fyr­ir­rúmi og hvatti til ábyrgr­ar for­ystu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert